07.11.2011 20:00
Verður Salka GK endurbyggð?
Að undanförnu hefur það færst mjög í vöxt að hinir ýmsu aðilar um land allt hafi samband við mig til að spyrja um hitt og þetta er tengist sjómennsku og útgerð. Mannaráðningar, kaup og sala báta o.fl. hefur oft borið á góma, þó svo að það sé ekki mitt hlutverk að ráðleggja með slíkt. Oftast bendi ég viðkomandi á aðila í þeim efnum.
Þegar Sölku GK 79 var sökkt í Sandgerðishöfn á dögunum höfðu a.m.k. þrír hópar áhugamanna samband við mig. Allt voru þetta hópar sem höfðu spáð í að kaupa bátinn áður en hann sökk og gera hann upp. Sumir þeirra höfðu m.a. verið í viðræðum við þáverandi eiganda bátsins.
Nú eftir að honum var bjargað upp aftur, höfðu sumir þessara aðila aftur samband og eru heitir fyrir því að eignast hann og endurbyggja. Aðallega er það einn hópur sem er hvað heitastur og hef ég vísað þeim að hafa beint samband við Sigurð Stefánsson kafara, sem er þessa stundina að bjarga verðmætum úr bátnum. Hefur Sigurður staðfest við mig að sá aðili hafi haft samband við hann og tjáði hann þeim að báturinn væri nú í ferli þar sem verið væri að hirða allt nothæft og því yrðu þeir að vera snöggir að ákveða sig ef þeir vildu fá bátinn, áður en lengra yrði haldið, en reiknað er með að ef ekkert komi út úr því alveg á næstunnim verði báturinn að lokum trúlega rifinn.
1438. Salka GK 79, sköllótt, þ.e. húslaus í Njarðvikurslipp. Nú er spurningin hvort þetta sé endastöðin, eða hvort báturinn verði endurbyggður og komið í gagnið að nýju? © mynd Emil Páll, 7. nóv. 2011
