24.09.2011 00:00

Keflvíkingur KE 100 / Bergur Vigfús GK 53 / Marta Ágústsdóttir GK 31 / Marta Ágústsdóttir GK 14

Þetta skip er þið fyrsta í röð 18 systurskipa og er ennþá til í íslenska flotanum og er einmitt nýkomið út lagfæringu, þar sem skipt var um formastur o.fl. úr Súlunni EA, sem fór í pottinn til Belgíu.



                                      967. Keflvíkingur KE 100, í höfn í Njarðvík


                                  967. Keflvíkingur KE 100 © mynd Jón Páll


                         967. Keflvíkingur KE 100 © mynd Snorrason


                       967. Keflvíkingur KE 100 © mynd Þorgrímur Aðalgeirsson


                   967. Bergur Vigfús GK 53 © mynd Snorrason


     967. Bergur Vigfús GK 53 © mynd úr safn Sólplasts


   967. Bergur Vigfús GK 53 © mynd úr safni Sólplasts


        967. Marta Ágústsdóttir GK 31 © mynd MarineTraffic, Alfons Finnsson, 22. apríl 2005


                              967. Marta Ágústsdóttir GK 14, í Njarðvíkurhöfn


                                 967. Marta Ágústsdóttir GK 14, í Grindavík


                                967. Marta Ágústsdóttir, í Njarðvíkurslipp 2008


                   967. Marta Ágústsdóttir GK 14, í Grindavík 2008 © myndir Emil Páll


                 967. Marta Ágústsdóttir GK 14, í Grindavík © mynd Emil Páll, 5. apríl 2011


    967. Marta Ágústsdóttir GK 14, komin með mastrið o.fl. af Súlunni © mynd Emil Páll, 9. ágúst 2011

Smíðanr. 403 hjá Veb. Elbewerdt í Boizenburg, Þýskalandi 1965, eftir teikningu Hjálmar R. Bárðarsonar. Yfirbyggður að hluta við bryggju í Njarðvik 1976 og framkvæmdum lokið í Danmörku 1977-78. Um leið var hann lengdur þar ytra.

Samkvæmt sölusamningi átti Miðnes hf. að afhenta Njáli hf. skipið 15. nóv. 1995 en gerði ekki. Fóru leikar því þannig að kaupandi krafðist með dómi að skipið yrði tekið úr vörslu seljanda og féll sá dómur 9. feb. 1996 og var skipið kyrrsett á Reyðarfirði 12. feb. og eftir það var samið um afhendingu að lokinni loðnuvertíð.

Þetta skip var þið fyrsta í röð 18 systurskipa og er ennþá til í íslenska flotanum og er einmitt nýkomið út lagfæringu, þar sem skipt var um formastur o.fl. úr Súlunni EA, sem fór í pottinn til Belgíu.

Nöfn: Keflvíkingur KE 100, Bergur Vigfús GK 53, Marta Ágústsdóttir GK 31 og núverandi skráning er Marta Ágústsdóttir GK 14.