10.09.2011 00:00
Akranessmíði frá 1967 enn í fullri drift
Sturlaugur ÁR 77 / Hvalsnes KE 121 / Mánatindur SU 95 / Andvari VE 100 / Sæbjörg ST 7 / Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Þau nöfn sem myndir vantar af eru: Drífa RE 10, Drífa ÁR 300, Júlíus ÁR 111, Júlíus II ÁR 110, Júlíus og Júlíus ST 5.
1054. Sturlaugur ÁR 77 © mynd Snorrason
1054. Hvalsnes KE 121 © mynd Emil Páll
1054. Mánatindur SU 95 © mynd Þór Jónsson
1054. Mánatindur SU 95 © mynd Þór Jónsson

1054. Andvari VE 100 © mynd Snorrason
1054. Sæbjörg ST 7 © mynd Snorrason
1054. Sæbjörg ST 7, siglir út Hafnarfjörð © mynd í eigu Emils Páls

1054. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 © mynd MarineTraffic
1054. Sveinbjörn Jakobsson SH 10, í Ólafsvík © mynd Heiða Lára, 31. júlí 2011
Smíðanúmer 19 hjá Þorgeir & Ellert hf., Akranesi 1967, eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar. Tekinn af skrá og úreltur 16. júlí 1992. Endurskráður 1994, sem vinnubátur. Lá þó áfram við bryggju í Reykjavík þar til í ársbyrjun 1996 að hann var fluttur í Arnarvoginn. Í júlí 1996 var tekin ákvörðun um að gera hann upp og var því lokið hjá Ósey hf., Hafnarfirði í maí 1997. Nánast allt byggt nýtt, nema botninn, auk þess sem báturinn var lengdur, breikkaður og skutur sleginn út og skráður sem fiskiskip að nýju.
Kom í fyrsta sinn sem Hvalsnes KE til heimahafnar í Keflavík aðfaranótt 14. ágúst 1976 og sem Sveinbjörn Jakobsson SH 10 til Ólafsvíkur föstudaginn 25. ágúst 2006.
Nöfn: Drífa RE 10, Sturlaugur ÁR 77, Hvalsnes KE 121, Mánatindur SU 95 Drífa ÁR 300, Andvari VE 100, Júlíus ÁR 111, Júlíus II ÁR 110, Júlíus, Júlíus ST 5, Sæbjörg ST 7 og núverandi nafn: Sveinbjörn Jakobsson SH 10.
