14.07.2011 12:00

Meira um Útlagann

Jón Páll Jakobsson sendi mér þessar upplýsingar varðandi  bátinn Útlaga, sem ég birti myndir af í gær.Hann heitir hann í dag Öyfisk og liggur við bryggju í Örnes í Noregi og hefur ekki verið gerður út í dálítinn tíma. Jón starfar fyrir eiganda bátsins  Torelif Skotheimsvik sem skipstjóri á Polarhav N-16-ME (ex Skotta) 

Saga bátsins eftir að hann fór af landi brott er nokkurn veginn svona: Var gerður út í Hanstholm í nokkur ár af yfirmanni hans og fleirum og var þá íslensk áhöfn, síðan eignast Torleif hann og hefur verið frekar stöpul útgerð á honum síðan. En hann er með frystingu og farið stundum á haustin að veiða grálúðu.

Hér fyrir neðan myndina birti ég sögu bátsins


             1860. Útlaginn ex Þórir Jóhannsson GK 116 © mynd úr safni Sóplasts
 

Smíðanúmer 30 hjá Mánavör hf., Skagaströnd 1988, en skrokkurinn var smiðaður hjá Ateliers et Chantiers og Maritines d'Hamfleur, í Frakklandi.

Þó báturinn væri aðallega gerður út frá Vestmannaeyjum hafði hann heima höfn i Garði, þar sem hann fékk með því betri fyrirgreiðslu.

Afskráður til geymslu 30. nóv. 1993 Endurskráður sem vinnubátur og lengdur 1994. Var notaður eftir það sem rannsóknarskip fyrir neðansjávarmyndavél.  Seldur úr landi til Noregs 3. nóv. 1995.

Eftir að báturinn var seldur til Noregs var hann lengi vel gerður út frá Hanstholm í Danmörku, undir skipstjórn feðgana Jóns Magnússonar, nú skipstjóra á flutningaskipinu Axel og Magnúsar Daníelssonar, nú skipstjóra á Faxa RE 24.

Nöfn:  Þórir Jóhannsson GK 116,  Útlaginn, Öyfisk N-34-ME, Öyfisk Sf-4-Y, aftur  og núverandi nafn: Öyfisk N-34-N
.