07.06.2011 19:00
Annað mastur og fleiri endurbætur í Grindavíkurhöfn
Fyrir allmörgum mánuðum var sagt frá því bæði hér á þessari síðu, svo og á annarri að til stæði að setja mastrið af Súlunni EA, sem fór í pottinn, á Mörtu Ágústsdóttur GK 14. Ekki voru allir sáttir við það og fengum við síðuritarar af báðum síðunum föst skot um dellu og annað í þá veru frá einum starfsmanni Njarðvíkurslipps sem kallar sig Gústa. Hann fullyrti að ekkert slíkt væri á döfinni, enda myndu þeir í slippnum vita það fyrstir.
Hinn síðuritarinn sem fékk frá honum skot benti honum á að þetta yrði ekki gert í slippnum heldur við bryggju í Grindavík og það er nú orðin raunin, auk þess sem fleiri endurbætur muni fara þar fram og þá jafnvel samkvæmt hinni síðunni notast við fleira út Súlunni. Mun verkið verða unnið af Vélsmiðju Grindavíkur og sést á þessum myndum að búið er að fjarlægja frammastrið, þar sem báturinn liggur í Grindavíkurhöfn.

967. Marta Ágústsdóttir GK 14, án framasturs, í Grindavík í morgun © myndir Emil Páll, 7. júní 2011

Skrifað af Emil Páli