28.03.2011 14:08
Vélavana skemmtibátur við Voga

6654. Hnoss,sem dró þann vélavana að landi, við bryggju í Vogum © mynd Emil Páll, 4. okt. 2010
Landhelgisgæslunni barst kl. 12:09 aðstoðarbeiðni frá skemmtibáti, sem var vélarvana norðan við hafnargarðinn í Vogum. Skipverjum á fiskibáti tóku bátinn í tog og drógu hann til lands.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GNA var kölluð út auk þess sem björgunarskip og bátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu, sem og nærstaddir bátar voru beðnir um að fara til aðstoðar Tilkynning barst til stjórnstöðvar kl. 12:44 um að fiskibáturinn Hnoss væri kominn með bátinn í tog og sigldi með hann til Voga. Einnig var Jón-Oddgeir, björgunarbátur Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á staðnum. Skömmu síðar var þyrla Landhelgisgæslunnar komin á staðinn en snéri fljótlega til baka þar sem ekki var talin þörf á frekari aðstoð.
