20.03.2011 18:20
Bergvík KE 55

323. Bergvík KE 55 © mynd Snorrason

323. Bergvík KE 55 © mynd Snorrason
Smíðaður í Nyborg, Danmörku 1960, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar og kom til Keflavíkur 2. mars 1960.
Úreldur 30. des. 1992 og lá við bryggju í Reykjavík þar til að hann var endurskráður í júlí 1994 sem skemmtibátur og siglt frá Reykjavík 29. júlí 1994 til Englands þar sem setja átti á bátinn siglutré og breyta í tveggja metra skútu og sigla þaðan til Karabíska-hafsins.
Hef engar upplýsingar um hann eftir að hann fór frá Reykjavík sem Sædís, nema hvað hann var afskráður úr íslenskri skipaskrá 25. júní 1998.
Nöfn: Bergvík KE 55, Jóhanna ÁR 206, Njörður ÁR 38, Jóhanna ÁR 38, Sædís ÁR 38 og Sædís.
Skrifað af Emil Páli
