01.03.2011 23:00
Júpiter ÞH 61

130. Júpiter ÞH 61, drekkhlaðinn á Akranesi © mynd Magnús Þór Hafsteinsson 1995
Smíðanúmer 819 hjá Ag Werk Seebeck Ltd, Bremerhaven, Vestur-Þýskalandi 1957 sem botnvörpungur (síðutogari). Kom nýr til Neskaupstaðar 16. janúar 1957.
Breytt úr botnvörpungi (síðutogara) í fiskiskip og þá aðallega nótaskip 1979.
Hrólfur Gunnarsson eigandi skipsins ætlaði sér að flytja með til Keflavíkur 1982 og gerði það út þaðan vetrarvertíðina og var skipið þá stærstia togskip sem gert hefur verið út frá Suðurnesjum.
Miklar breytingarnar s.s. dýpkun nótakassa, komið fyrir nótaleggjara, íbúðum breyt tog skipt um innrétitngar, skipt um skut o.fl. hjá Slippstöðinni á Akureyri sumarið 2002, en áður en verkinu lauk var ákveðið að fresta hluta þeirra.
Er nýr Júpiter var keyptur til Þórshafnar var þessum Júpiter lagt þ.e. í október 2004 og þar til í jan 2005 að hann var gerður út sem loðnuflutningaskip fyrir Ísfélag Vestmannaeyja. Eftir loðnuflutningana átti að selja skipið í brotajárn til Danmerkur, en þar sem ástand skipsins var svo gott var hætti við það. Var því ákveðið að ljúka breytingum og endurbæta skipið í Skipalyftunni, Vestmannaeyjum sumarið 2005.
Seldur til Esbjerg í Danmörku í brotajárn í mars 2008.
Nöfn: Gerpir NK 106, Júpiter RE 161, Júpiter ÞH 61, Suðurey VE 12, Bjarnarey VE 25 og Bjarnarey VE 21.
Skrifað af Emil Páli
