visir.is:
Olían úr Goðafossi hefur náð landi við Akeröya í Noregi. Björgunarstörf er í fullum gangi við að hreinsa olíuna sem lekið hefur úr skipinu frá því það strandaði í gærkvöldi.
Öll áhersla er nú lögð á að koma í veg fyrir mengunarslys. Sænska strandgæslan leggur nú þeirri norsku lið við björgunarstarfið, en svæðið er friðaður þjóðgarður.
Gat rifnaði á báða olíugeyma skipsins og hefur svartolía lekið úr því síðan. Hátt í 800 tonn voru af brennsluolíu um borð þegar skipiið strandaði, en ekki er vitað hversu mikið hefur lekið út. Tvöföld flotgirðing er nú umvherfis skipið til að hefta útgreiðslu olíunnar og er verið að setja þá þriðju til öryggis. Þá er olíu stöðugt dælt upp í þartilgerða báta, en ekki er ljóst hvort olía hefur náð til strandar.
Ekkert amar að 14 manna íslenskri áhöfn skipsins, sem enn er um borð, en gott veður er á svæðinu og áhöfninni engin hætta búin. Hátt í 500 vörugámar eru í skipinu. Skipið, sem er 165 metra langt gámaskip og mælist 17 þúsund tonn að stærð, er í eigu Eimskips, en skráð í Seint Jhons.
Um leið og olíulekinn hefur verið stöðavður, verður ráðist í að hífa alla gámana yfir á annað skip, og síðan verður öflugum drátatrbátum beitt við að ná skipinu á flot, en það er nú fast skorðað á skerjunum og hallast sjö gráður á bakborða. Ekki er enn vitað um orsakir strandsins, en sjópróf verða síðdegis eða á morgun. Hafnsögumaður var ný farinn frá borði þegar skipið strandaði.