14.02.2011 23:08
Helguvík: Beitir kominn, Börkur farinn
Þeir voru fljótir að landa þessu slatta sem Börkur kom með í dag til Helguvíkur og um leið og hann fór kom Beitir NK 123 inn að landa, en hann var með töluvert meiri loðnu en hinn. Fregnir um að Ásgrímur Halldórsson kæmi næst á eftir Berki, eru eitthvað málum blandið, því hann lá inni í Vestmannaeyjum í brælunni og hefur mest verið á reki í dag í Garðsjó og því er hann tómur.
Aðalástæðan fyrir þessu er að ekki hafði fundist nógu stórt síli fyrr en í morgun svo þeir höfðu ekki heimild til veiða og kemur samspil á Frystigeymsluplássi á Hornafirði þar inn í.
Þeir eru semsagt ekki með pöddu um borð en mega víst byrja veiðar eftir miðnætti og ein af ástæðum þess er að frystiskip sem beið fyrir utan komst inn til Hornafjarðar í dag en útlitið á því var ekki of gott í morgun.
Hér koma þrjár myndir sem ég tók af Beiti í Helguvík nú rétt fyrir kl. 23 í kvöld.



2730. Beitir NK 123, í Helguvík í kvöld © myndir Emil Páll, 14. feb. 2011
Hér koma þrjár myndir sem ég tók af Beiti í Helguvík nú rétt fyrir kl. 23 í kvöld.



2730. Beitir NK 123, í Helguvík í kvöld © myndir Emil Páll, 14. feb. 2011
Skrifað af Emil Páli
