29.01.2011 17:18

Krabbaverkefni í Sandgerði hlýtur 3. milljóna kr. styrk úr Vaxtarsamningi Suðurnesja

Lífið í Sandgerði - 245.is:

 

29.1.2011 15:55:50

Hluti umsækjenda við móttöku styrksins í Duus húsum
Frá vinstri: Guðjón Davíðsson frá MC09 ehf., Halldór Pálmar Halldórsson forstöðumaður Háskólaseturs Suðurnesja, Rúnar Eiríksson frá Slægingarþjónustu Suðurnesja og Davíð Freyr Jónsson frá Arctic ehf.

Háskólasetur Suðurnesja í Sandgerði, ásamt Náttúrustofu Reykjaness, Arctic ehf., Slægingarþjónustu Suðurnesja og MC09 ehf. hefur hlotið 3. milljóna króna styrk úr Vaxtarsamningi Suðurnesja fyrir verkefnið "Grjótkrabbi - rannsóknir og vinnsla á Suðurnesjum".

Verkefnið gengur út á veiðar, rannsóknir, vinnslu og markaðssetningu á grjótkrabba, sem er nýleg tegund hér við land, en er þekkt nytjategund við NA strönd Ameríku. Grjótkrabbi finnst enn sem komið er hvergi í Evrópu nema á Íslandi.

Byggt verður á þeirri þekkingu og reynslu sem fengist hefur hjá Háskólasetrinu en það hefur stundað veiðar á þessum nýja landnema frá árinu 2006 í tengslum við tvö meistaraverkefni við HÍ. Verkefnisstjóri verður Halldór Pálmar Halldórsson forstöðumaður Háskólaseturs Suðurnesja í Sandgerði.

Meginmarkmið verkefnisins er að stuðla að auknum rannsóknum og sjálfbærum veiðum á grjótkrabba, og komast að því hvernig hægt sé að hámarka verðmæti þeirrar auðlindar sem krabbinn er. Áætlaður árangur er margþættur. Með því forskoti sem fengist með verkefninu í vinnslu, vöruþróun og markaðssetningu afurðanna má ætla að verkefnið leiði til verðmætasköpunar, aukinnar veltu, útflutnings og fjölgunar starfa hjá fyrirtækjunum.

Verkefnið mun skila auknum rannsóknum og þekkingu á Suðurnesjum og efla þá rannsóknastarfsemi sem fyrir er og að líkindum verða hluti af framhaldsverkefni á háskólastigi. Verkefnið mun að auki leiða til samstarfs ólíkra aðila en nýmælið felst ekki síst í því að vísindi og þróun nytja fara saman frá upphafi. Grundvallarforsenda er að klasi myndist um svona verkefni því horfa þarf til allra verkþátta samtímis. Hver aðili verkefnisins hefur yfir að ráða ákveðinni sérþekkingu sem nauðsynleg er til að verkefnið nái fram að ganga.

Mynd: Reynir Sveinsson | lifid@245.is