20.01.2011 00:00

Engey RE / Draupnir RE / Brynjólfur ÁR / Guðfinna Steinsdóttir ÁR / Hafnarey ÁR / Kristbjörg VE

Smíðaður í Noregi 1963 og tæpum 30 árum síðar var hann á leið í pottinn, en eins og kemur fram fyrir neðan myndirnar fóru leikar þannig að hann var að lokum brotinn niður í Njarðvík, um 15 árum eftir þá áætlun


                                 44. Engey RE 11 © mynd Snorri Snorrason


                          44. Engey RE 11 © mynd Snorrason


                     44. Engey RE 11 © mynd Snorrason


                    44. Draupnir RE 150 © mynd Snorrason


                   44. Brynjólfur ÁR 4 © mynd Snorrason


             44. Guðfinna Steinsdóttir ÁR 10 © mynd Snorrason


                 44. Hafnarey ÁR 113 © mynd Snorrason


                         44. Kristbjörg VE 70 © mynd Ísland 1990


         44. Kristbjörg VE 70, kominn síðasta spölinn í pottinn, í Njarðvíkurslipp © mynd Emil Páll, 13. sept. 2006.

Smíðanúmer 163 hjá Framnæs Mek. Verksted, Sandefjord, Noregi 1963.

Yfirbyggður við bryggju í Njarðvik af Vélsmiðjunni Herði hf., 1979.

Eftir að hafa verið seldur til Dalvíkur á sínum tíma kom hann þangað í fyrsta sinn 16. nóv. 1980.

Úreld í júli 1992 og átti að seljast í bortjárn til Belfast, Írlandi. Dráttarskipið Hvanneyrin dró bátinn til Njarðvíkur 1992, þar sem Bergþór Hávarðarson hafði keypt bátinn og ætlaði að draga hann með sér þegar hann færi á ex Búrfelli KE. Af því varð þó aldrei og í júlí 1996, keypti kona á Eyrarbakka bátinn með það að markmiði að gera úr honum Listagallerí, sem staðsett yrði í Vatnagörðum við Sundahöfn í Reykjavík. Beðið var eftir leyfi Borgarráðs. Sú sala gekk ekki upp og sumairð 1997, keypti Helgi Friðgeirsson, Vestmannaeyjum bátinn og ætlaði að láta endurbyggja hann að nýju. Helgi flutti til Keflavíkur 2003, en ekkert gerðist með bátinn og var hann enn við bryggju í Njarðvik. Komu þá til sögunnar aðilar sem vildu kaupa bátinn og fara með í brotajárn í Danmerkur í maí 2004. Helgi var hins vaerg ósveigjanlegur í verði og því varð ekkert úr kaupnunum. Þegar Helgi var tekinn til gjaldþrotaskipta í febrúar 2005, eignaðist Reykjaneshöfn bátinn á uppboði, enda var hann enn við bryggju í Njarðvik og í september 2006 var báturinn brotinn niður í Njarðvíkurslipp.

Nöfn: Engey RE 11, Draupnir RE 150, Húnaröst ÁR 150, Brynjólfur ÁR 4, Guðfinna Steinsdóttir ÁR  10, Brimnes EA 13, Hafnarvík ÁR 113 og Kristbjörg VE 70