16.01.2011 18:59
Ósk KE komin á langlegu- eða dauðadeildina
Þeir voru ekki margir sem vildu trúa mér er ég flutti frétt þess efnis hér á siðunni að verið væri að leggja Ósk KE 5, en áhöfnin færi yfir á Erling KE 140. Nú er það þó orðið deginum ljósara því Erling er farinn út með fyrrum áhöfn Óskar að leggja og Ósk hefur verið færð yfir í þann hluta Njarðvíkurhafnar sem ýmist er kölluð dauðadeildin eða langlegudeildin.
Þarna eru 3 skip og þó talað sé um að sum þeirra fari í verkefni sjá menn ekkert slíkt gerasta, en þetta eru Stormur SH 333, sem fáir trúa að komist í rekstur aftur, Röstin GK 120, sem búið er að gera að mestu upp en fer þó ekki af einhverjum ástæðum í rekstur, Lára Magg ÍS 86, sem að vísu er nýbúið að selja og er rætt um að skipið fari fljótlega í slipp og síðan rekstur. Nú Ósk KE 5 sem enginn veit um framtíðina og Stafnes KE 130 sem hefur legið í nokkra mánuði, fyrst í Þorlákshöfn og síðan í Njarðvík, en ekkert er vitað um framtíð skipsins.

1855. Ósk KE 5 er kominn inn á deildina og inn fyrir 619. Láru Magg ÍS 86 og þar með í pláss það sem Jóhanna Margrét var í til margra ára og allir vita hvernig það skip fór © myndir Emil Páll. 16. jan. 2011

Skrifað af Emil Páli