09.01.2011 12:21

Eldborgin rakst á ísjaka

Þessa símamynd tók Þorgrímur Ómar Tavsen núna áðan, er Sægrímur og Eldborg sigldu nánast samsíða norður af Garðskaga. Togarinn Eldborg RE er á leið í land eftir að gat kom á olíutank hans. Togarinn var á veiðum við strendur Grænlands og kom gat á skipið þegar það rakst á ísjaka. Hafnarstarfsmenn, slökkviliðsmenn og kafarar taka á móti Eldborginni í Hafnarfjarðarhöfn er hún kemur til hafnar
Fram kom á mbl.is að samkvæmt sögn Kristins Aadnegard, forstöðumanns þjónustusviðs Hafnarfjarðarhafnar, er málið ekki mjög alvarlegt, þótt einhver olía kunni að hafa lekið út. Meiri líkur séu á því að olían haldist í skipinu vegna þrýstings sem skapast í olíutankinum.

Kristinn segir að það taki stuttan tíma að stoppa lekann. Fyrst þétta kafararnir í gatið og að því loknu fer Eldborgin í slipp, áður en hún fer aftur á veiðar.



     Eldborg á siglingu til Hafnarfjarðar eftir að hafa rekist á ísjaka © símamynd Þorgrímur Ómar Tavsen, norður af Garðskaga núna áðan, 9. jan. 2011