09.01.2011 00:00
Líf GK 67 sjósett eftir þó nokkrar endurbætur
Í dag ( gær laugardag) var sjósettur í Sandgerði báturinn Líf GK 67, eftir miklar endurbætur, sem unnar voru hjá Sólplasti ehf., í Sandgerði. Báturinn var lengdur um 1.20 metra, breikkaður og gerðar á hann nýjar síður, svo dæmi séu tekin. Birti ég hér myndir af því þegar báturinn var fluttur frá Sólplasti og til sjávar í Sandgerði, sjósettur og síðan nokkrar myndir af prufusiglingu bátsins, en áður hef ég fylgt bátnum eftir í gegn um endurbæturnar.
Bíll frá Jóni og Margeiri í Grindavík leggur af stað með bátinn, frá höfuðstöðvum Sólplasts í Sandgerði
Hér sést nánar hvernig báturinn sem heitir 7463. Líf GK 67 var dreginn
Hér er ekið eftir Strandgötunni við gatnamót Hafnargötu
Hér er farið fram hjá gatnamótum Víkurbrautar
Ekið fram hjá vitanum og niður á hafnargarðinn
Þá er 7463. Líf GK 67 komin niður á Hafnargarð
Hér er birjað að hífa bátinn af dráttarvagninum
Bátnum slakað miður með bryggjunni
Hér er Líf GK 67 komin í sjó
Hér siglir eigandinn út með konu sína í smá prufutúr
Fallegur bátur eftir endurbæturnar
Snúið við og siglt aftur að bryggju


Siglt aftur og nú út úr höfninni

Beygt út í innsiglingarrennuna
Komið til baka

Slegið af ferðinni og siglt í átt að smábátahöfninni í Sandgerði
© myndir Emil Páll, 8. jan. 2011
