14.12.2010 10:50
Stöðvun veiða blasir við vegna ýsuskorts
Af bb.is:
Krókaflamarksbátar eiga innan við þriðjung eftir af úthlutuðum veiðiheimildum í ýsu. "Ástandið er því grafalvarlegt og knýjandi að stjórnvöld komi að málinu. Stefna LS er skýr í þessu máli að ýsa veidd á dagróðrabáta teljist aðeins að hálfu til kvóta," segir á vef Landsambands smábátaeigenda. Á fyrstu þremur mánuðum fiskveiðiársins var búið að veiða 13.519 tonn af ýsu. Af því höfðu krókaaflamarksbátar veitt 41,3% af heildarýsuaflanum eða 5.588 tonn. Ýsuafli togara var hins aðeins þrjú þúsund tonn eða 22,6% af heildarafla ýsu. Til samanburðar var á þessu tímabili árið 2007 afli togara 10.343 tonn eða rúmur þriðjungur þess sem þá hafði verið veitt en ýsuafli krókaflamarksbáta tæp átta þúsund tonn eða 26,4% heildarýsuafla á fyrsta ársfjórðungi fiskveiðiársins 2007/2008.
LS segir mikla óánægju gæta hjá smábátaeigendum með veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í ýsu. "Stofnunin lagði til að veiðiheimildir yrðu minnkaðar niður í 45 þúsund tonn sem er aðeins tæpur helmingur af því sem hún lagði til fyrir tveimur árum. Sjávarútvegsráðherra ákvað hins vegar að ýsukvóti þessa árs yrði 50 þús. tonn. Sjómenn sem stunda veiðar á grunnslóð eru sammála um að ýsugengd þar sé nú meiri en á sl. ári. Því kom þeim mikill niðurskurður á óvart. Þeir segja ýsuráðgjöfina taka mið af veiðum á togslóð, enda fari togararallið þar fram. Þar sé vissulega minna af ýsu og sína aflatölur að ýsuveiðar togara hafa gengið illa, þessu er öfugt farið á grunnslóðinni,"segir á smabatar.is.

Skrifað af Emil Páli