17.10.2010 09:08

Kommentin á ný, en nú eftir föstum reglum

Nú ætla ég að opna aftur fyrir kommentin, en gegn mjög föstum reglum. Þær eru að menn gæti orðavals og sleppi að vera með dulnefni þar sem enginn þekkir þá. Hafa ber í huga að ég hef heimilað sumum að nota dulnefni, ef þeir hafa samið við mig um það en ég veit sjálfur hið rétta nafn. Enda snýst þetta um að ég þekki þá sem skrifa á mina síðu.

 

Þá ber einnig að hafa í huga að síðan er algjörlega unnin eftir mínum reglum, en einhverjir þarna úti fá engu að ráða í þeim efnum. Hún er vinsæl og því mun ég halda áfram að láta hana vera eftir mínum reglum. Þá ber að hafa í huga að langt innan við 1% gesta á síðunni eru með komment og því skiptir það síðuna, varðandi vinsældir,  litlu máli, hvort komment eru í gangi eða ekki. Fyrir þá sem eru vinir mínir á Facebook, eru alltaf möguleikar á að kommenta þar um viðkomandi skip, því þar koma myndirnar einnig.

 

Þá vil ég biðja þá sem hafa þörf fyrir að koma með komment á færslur sem birtust fyrir fjölda mánaða að láta það vera. Því í engum tilfellum svara ég þeim kommentum, enda ekki vinnandi vegur að svara kommentum mörgum mánuðum eftir að viðkomandi færslur birtust, þar sem á hverjum degi birtast 17-20 færslur með misjöfnum fjölda mynda. Mínar reglur eru því að svara engu sem eru á færslum sem komnar eru það langt niður listann, að myndir sjást ekki fyrr en spellt er sérstaklega á.

 

Næst þegar ég þarf að loka fyrir kommentin, ef einhver fer ekki eftir reglum, gæti það orðið í síðasta skipið sem ég loka, síðunni fyrir kommentum þar sem ég mun þá trúlega ekki opna fyrir komment að nýju. Komi til þess mun ég um leið og ég loka slíku, geta þeirra nafna, eða dulnafna sem orsökuðu lokunina, auk IP-tölu viðkomandi.

 

Höldum áfram að gera góða síðu, enn betri og sleppum öllum fúkyrðum og leiðindamáli og hvað þá dulnöfnum út í bláinn.

P.s. þrátt fyrir að ég opni síðuna fyrir komment, er það aðeins í nokkra daga, ef menn fara ekki eftir þessum reglum. Með því eru þeir ekki að skemma fyrir mér, heldur öðrum sem hafa gaman af því að hafa komment. Áfram mun ég einnig fjarlægja komment, en í dag eru nokkrir einstaklingar á bannlista hér á síðunni hvað komment varðar og eru komment frá þeim fjarlægð hvort sem þeir eru að skrifa í góðu eða slæmu. Af þeim eru fjórir með aðrar síður og hef ég fjarlægt tengil á þær síður.