13.10.2010 18:12

Einhamar færir út kvíarnar

Af vefnum grindavik.is:

Einhamar færir út kvíarnar

Einhamar ehf. í eigu Stefáns Kristjánssonar útgerðarmanns í Grindavík hefur keypt útgerðarfélagið Lukku ehf. sem gerir út Narfa SU-68 á Stöðvarfirði. Narfi er um 15 tonna krókaaflamarksbátur með beitningarvél.

Stefán sem gerir út krókaaflamarksbátana Auði Vésteins GK og Gísla Súrsson GK, sagði í samtali við Fiskifréttir að rekstur Narfa SU yrði óbreyttur. Báturinn yrði gerður út frá Stöðvarfirði með sömu áhöfn og áður. Narfi SU hefur verið í hópi aflahæstu smábáta undanfarin ár undir stjórn Ársæls Guðnasonar og Guðna Ársælssonar.

Undanfarin ár hafa bátarnir Auður Vésteins GK og Gísli Súrsson GK verið gerðir út frá Stöðvarfirði meira en hálft árið en aflanum ekið til Grindavíkur til vinnslu hjá Einhamar Seafood. Þar eru framleiddar ferskar afurðir úr þorski, ýsu og steinbít. Fyrir utan afla af eigin bátum hefur hráefni verið keypt af fiskmörkuðum og einnig hafa bátar verið í viðskiptum, þar á meðal Narfi SU. Á síðasta ári fóru um 3.200 tonn í gegnum vinnsluna hjá Einhamar Seafood. Um 1.930 þorskígildistonna kvóti er á bátunum þremur.

Mynd: Stefán Kristjánsson í Einhamri.