25.07.2010 11:02
Mörlandinn og leirslabbinn
Síðan taka við myndir frá honum sem fylgdu með, að sjálfsögðu fyrir utan það sem ég birti eftir hann í nótt:
Ég sendi þér hérna nokkrar myndir sem ég tók á rúntinum í dag (gær inskot epj) og líka af helekopterum sem virtust nota Reykjavíkurhöfn eða réttara sagt skipin á höfninni sem flugpall, annars vegar fór þyrlan af T6 í loftið og eitthvað austur á bóginn og svo vélin af Danska gæsluskipinu, sem notaði góða veðrið til að æfa hífingar og björgun úr sjó, svo voru 3 skemmtiferðaskip í og við höfnina og það var í nógu að snúast hjá hvalaskoðunarbátunum og síðast en ekki síst mörlandar að skrefa um miðbæinn og hafnarsvæðið og hangandi á kaffihúsum eða kaffigangstéttum. En það var afskaplega lítið sem minnti á fiskveiðar eða fiskverkun við þessa fyrrum fiskveiðihöfn, en hægt var að kaup Leirslabba í Kolaportinu.
