21.07.2010 17:53
Makrílvinnsla í Grundarfirði
Vinna 50 tonn á sólarhring |
21. júlí 2010 |
|
"Veiðarnar hafa gengið vel en voru reyndar tregar núna síðasta sólarhringinn," segir Runólfur Guðmundsson hjá G. Run í Grundarfirði um makrílveiðarnar í samtali við Skessuhorn í gær, en skipin Helgi og Hringur eru nú í sinni þriðju veiðiferð frá því veiðarnar byrjuðu á mánudegi í síðustu viku. Í fyrstu veiðiferðinni komu skipin með 40 tonn og síðan 80 tonn í þeirri næstu. Makrílkvóti G. Run. er tæplega 400 tonn. Runólfur segir vinnsluna ganga vel en hún afkastar um 50 tonnum yfir sólarhringinn. Makríllin er hausskorinn og slógdreginn áður en hann fer í frystingu. Fiskurinn er fallegur af miðunum vestur af Reykjanesi þar sem skipin eru nú að veiðum. Runólfur segir að það hafi gengið vel að prufukeyra, en alls starfa rúmlega 80 manns í vinnslunni hjá G. Run.
|
|
Tveir bátar stunda strandveiðar á makríl frá Snæfellsnesi. Annar báturinn er gerður út frá Keflavík og heitir Blíða og hinn er Sæhamar frá Rifi. Þeir bátar þurfa styttra að fara til að ná í hráefni og það berst því hratt til vinnslunnar. Í vinnslunni í Rifi verður makríllinn einnig unnin í flök, en hátt verð er nú fyrir makríl á mörkuðum |

