23.05.2010 00:00

Egill SU 85 / Egill ÁR 85 / Sjöfn ÁR 123 / Egill I RE 123

Einn af síðustu trébátunum sem smíðaður var á Fáskrúðsfirði og eftir um 15 ára veru var hann afskráður, en síðan endurskráður fyrir fáum árum.


     2004. Egill SU 85 © mynd í eigu Emils Páls og er úr blaði frá sjósetningunni 1989, en ljósmyndari ókunnur


                           2004. Egill SU 85 © mynd úr Ægir


           2004. Egill ÁR 85 © mynd í eigu Emils Páls, ljósm.: ókunnur


             2004. Sjöfn ÁR 123 © mynd Hafþór Hreiðarsson


                              2004. Egill I RE 123 © mynd Emil Páll, 2009

Smíðaður af Guðlaugi Einarssyni, Fáskrúðsfirði 1989. Tekinn af skrá 2003. Endurskráður í nóvember 2008.

Nöfn: Egill SU 85, Egill ÁR 85, Hafþór NK 45, Sjöfn NS 123, Sjöfn NS 123, Sjöfn ÁR 123 og núverandi nafn: Egill I RE 123.