13.05.2010 17:40
Leikþátturinn hans Ella
Sl. föstudag var frumsýndur hér á síðunni leikþáttur, þar sem höfundurinn Erlingur Brim, breytti sögunni í einni svipan og hóf að hringja kolvitlaus út um hvippinn og hvappinn og ræja annan aðilann sem var í aðalhlutverki og gera hann tortrygginn. Að vísu er þetta í þriðja sinn á stuttum tíma sem hann er höfundur af einhverju hér á síðunni og breytir síðan um skoðun í miðjum klíðum, þannig að ekki verða fleiri leikþættir eftir hann sýndir hér.
Þó margir tækju þetta sem deilu milli tveggja aðaleikenda Emils og Hafþórs, snýst þetta ekki um þá, þeir voru báðir að vinna sitt verk eftir bestu getu. Inn í verkið bættust síðan sem aðalleikar Ásgeir og pabbi hans Jón. Þá komu þrír aukaleikendur sem ekki áttu að vera með, enda lásu þeir ekki textann, heldur komu með skot, eins og alltaf þegar einhver blástur kemur frá Emil, en þessir leikarar eru Gísli, Ingólfur og Sigurgeir, sem allir eiga það sameiginlegt að þurfa að nota hvert tækifæri til að blása af einhverri annarri ástæðu, sem í þeim býr. Gegna þeir því hlutverkinu Slettirekur.
Já, þessi leikþáttur er í raun unninn úr eftirfarandi handriti:
Fyrir nokkru bað eigandi bátsins Magnúsar KE 46, sem heitir Erlingur Brim, tvo síðueigendur um að auglýsa bátinn fyrir sig, auk þess sem hann var auglýstur á einhverjum öðrum ókeypis auglýsingasíðum. Fljótlega kom tilboð sem var tekið. Viðkomandi síðueigendur vildu fá að birta frétt þess efnis, en Erlingur vildi ekki að það væri gert fyrr en búið væri að ganga frá og skriflegur samningur væri í höfn. Þá ákvörðun lét hann kaupandann ekki vita um, sem sagði síðueiganda í sinni heimabyggð, Hafþóri frá því og sá að sjálfsögðu sagði frá kaupunum á sinni síðu.
Þegar það gerðist var enn rætt við Erling, en hann sagði það ekki koma til greina að segja frá sölunni strax.
Taldi Emil því það vera ljóst að þarna hefði verið farið í loftið, eitthvað sem ekki mátti gerast og hafði uppi stór orð um málið, en hinn síðueigandinn, sem einnig hafði auglýst bátinn, gerði grín að máli Hafþórs.
Eins og svo oft þegar Emil birtir eitthvað sem veldur umræðu og Erlingur þykist þurfa að vera á móti, hóf hann hringingar út og suður og fór ljótum orðum um Emil, en hafði þó ekki manndóm í sér að sýna þá sjálfsögðu kurteisi, að hringja í hann, því hann vissi upp á sig sökina. Á þessari stundu hafði Erlingur sannfært sjálfan um að hann hefði ekki stoppað sunnanmennina í frásögn af málinu og var það rauði þráðurinn í málflutningi hans. Því miður fyrir hann, eru önnur vitni af því, að hann stoppaði þá.
Inn í málið blandaðist fljótlega kaupandinn Ásgeir og síðan pabbi hans Jón sem var með furðulegar hótanir, sem kannski eru skiljanlegar í þeim þætti að hann var að verjast fyrir son sinn sem góður pabbi, en hótanir hans eru sendar heim til föðurhúsanna. Sama á við þann furðulega máta Jóns, að blanda ættingjum sínum í málið, til að þeir létu Emil heyra hvað hann hefði gert af sér. Í framhaldi af innskoti ættingja Jóns, hringdi Emil bæði í farsíma og eins heimasíma Jóns, en hann svaraði ekki og þó talhólf segði að hann myndi hringja síðar, hefur hann ekki gert það.
Vonandi fyrir alla aðila, ganga málin sinn eðlilega gang, en eitt er víst að Erlingur Brim verður hér eftir stimplaður sem algjör ómerkingur og því ekki haft neitt eftir honum, eða honum gerður nokkur greiði, með myndatökum eða öðru.
Þeir Emil og Hafþór halda sínum málum áfram eins og ekkert hafði gerst, enda báðir saklausir af þessari hringrás. Þó ótrúlegt sé þá bað aðeins ég, Emil Páll, viðkomandi afsökunar á ákveðnu orðatiltæki sem ekki átti við um Hafþór, en hinir gátu ekki beðið afsökunar á sínum þætti, en þeir viðhöfðu um Emil sem sýnir þeirra hug en það er þeirra vandamál en ekki mitt.
Ljóst er því að þar sem Erlingur Brim, á þann heiður, að í samráði við hann og oft eftir hans ósk, hefur enginn fengið meiri umfjöllun hér á síðunni en hann og þakklætið hans kemur fram þarna í formi þess að sýna mikið og ódrengilegt fals. Enda þó ótrúlegt sé, þá hefur hann aldrei verið ánægður með það sem gert hefur verið fyrir hann, hvort sem um er að ræða myndatökur, myndabirtingar, texta eða annað. Maður sem þekkir hann vel var búinn að vara mig við, en ég vildi ekki trúa að maðurinn væri svona falskur.
Til að fyrirbyggja allan misskilning verður ekki gefið tækifæri til að hafa álit á þessari frásögn hér fyrir neðan og ef menn koma með umræðu um málið eða einhver önnur skot út í loftið undir öðrum færslum mun ég almennt loka fyrir álit á síðunni og þar með hafa þessir örfáu skemmt síðuna fyrir öllum hundruðunum sem sækja hana dagalega. Síðan, ef það dugar ekki mun ég læsa síðunni, en þó með þeim hætti að leikendur í þessu hlutverki, svo og aðrir sem kunna að tjá sig verða þar á bannlista og fá aldrei að komast inn og þessir þrír í sjálfskipaða, slettureku-hlutverkinu eru þar efstir á lista.
Tekið skal fram að ég skil vel skrif Hafþórs og Ásgeirs Hólm, þar sem þeir vissu ekki alla málavexti, en ekki framkomu pabba hans né gjörning Erlings.
Í lokin vil ég láta það koma fram að þó við sunnanmennirnir höfum fjarlægt fyrri skrif um málið af síðum okkar, þá tók ég afrit af öllu sem fram kom á síðu minni áður en skrifun á þessari síðu voru fjarlægð, þannig að það hefur engan tilgang að afneita því sem þar kom fram. Sama hef ég raunar gert í öllum þeim tilfellum sem Slettirekurnar hafa komið fram með skrif um mig hvort sem það hefur verið á þessari síðu eða öðrum síðum.
Með kveðju Emil Páll
P.s. SLETTIREKUR og aðrir. Skrif mín, hafa öll þau 30 ár sem ég hef stundað skrif verið mjög umdeild og þannig vil ég hafa þau. Ólga í kring um skrifin mín, er mér langt í frá að vera mér óþóknanleg. Þið slettirekur breytið því ekki og því verð ég að segja í eitt skipti fyrir öll, sama og ég hef séð nokkra sem hafa skrifað mér til stuðnings, að ef þið þolið ekki þessi skrif, þá eruð þið vinsamlega beðnir um að hætta að koma hér inn á síðuna.
Fyrir þetta fyrirkomulag að láta það flakka eins og ég hugsa, og þora að skrifa það sem aðrir þora ekki, fékk ég oft viðurkenningu í denn.
Umdeildur púki, hef ég allaf verið og verð alltaf. Þið breytið því ekki, né stöðvið mig. Síðan mín fer ekki eftir einhverju normi sem þið viljið að síðurnar fari eftir, heldur eftir mínum hugsanahætti og þar með hafið þið það. Því er þessi síða ekki eins og hinar og hér fara fram skrif og fleira sem ekki er á hinum síðunum.
Ég veit að sumir verða núna brjálaðir við lestur á þessu, en því fleiri sem það verða, þeimum betur skemmti ég mér, þar sem púkinn í mér hefur þá fengið útrás og þau viðbrögð sem hann sækist eftir.
Góðar stundir.
