26.04.2010 00:00

Hefur borið tæplega 20 skráningar á hálfri öld, brunnið og strandað, en er enn í gangi

Sagt er að kötturinn eigi sér 8 líf, en þessi bátur sem er orðinn hálfrar aldar gamall, hefur borið tæplega 20 nöfn og/eða skráningar, hann hefur brunnið, verið endurbyggður, strandað, átti að úreldast en hætt var við það og er enn til og nú með nýtt nafn.

Hér birtist myndir af hluta af nöfnunum en þó ekki öllum, en þess í stað fleiri en ein mynd af sumum nöfnunum. Síðustu árin hefur sú skráning sem var á bátnum, ekki verið sú sama og kom fram í opinberum skráningum.


                     177. Seley SU 10 © mynd Snorrason


                           177. Jón Þórðarson BA 80 © mynd Snorri Snorrason


   177. Jón Ágúst GK 60 (sá blái til vinstri á myndinni) © mynd Emil Páll


       177. Fönix KE 111, sjósettur eftir endurbyggingu © mynd Emil Páll, 1986


                            177. Fönix KE 111 © mynd Emil Páll, 1986


                   177. Fönix KE 111, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll, 1986


                          177. Fönix KE 111 © mynd Snorrason


                        177. Krossanes SU 5 © mynd Hafþór Hreiðarsson


              177. Adolf Sveinsson VE 182 © mynd Hafþór Hreiðarsson


                  177. Eykon  RE 19, í Reykjavík © Markús Karl Valsson


                        177. Adolf RE 182 ( Eykon RE 19) © mynd Emil Páll


      177. Adolf RE 19 (Eykon RE 19), á Akranesi © mynd Júlíus V. Guðnason


     177. Adolf RE 19 ( Eykon RE 19), á Akranesi © mynd Júlíus V. Guðnason


    177. Arnfríður Sigurðardóttir RE 14, í Daníelsslipp á Akranesi © mynd Júlíus V. Guðnason 25. apríl 2010

Smíðanúmer 350 hjá Gravdal Skipbyggery, Sunde, Noregi 1960.

Endurbyggður og yfirbyggður hjá Dráttarbraut Keflavíkur hf. 1981-1986, eftir að eldur kom upp í bátnum, er hann hét Jón Ágúst GK 60,  28 sm. VNV af Garðskaga þann 31. janúar 1978. Áhöfn v/s Týs slökkti eldinn og dró bátinn síðan til Njarðvíkur.

Strandaði sem Bergvík VE 505, í Vöðlavík milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar 18. des. 1993. Við björgunartilraun á bátnum fékk björgunarskipið Goðinn á sig brot og strandaði og sökk 10. janúar 1994 og við það fórst einn skipverji Goðans, en Varnarliðið bjargaði sex skipverjum í aftakaveðri. Varðskipið Týr dró síðan Bergvíkina af strandstað lítið skemmda aðfaranótt 13. janúar 1994.

Úrelding var samþykkt 3. september 1994, en hætt var við úreldinguna 31. mars 1995.

Stefni bátsins var breytt 1998.

Breytt hjá Skipalyftunni í Vestmannaeyjum frá jan- mars 2003 í veiðiskip á þorski til áframeldis.

Lá í Reykjavíkurhöfn frá 11. nóv. 2004 til 18. des. 2009 að hann var dreginn af hafnsögubátnum Leyni upp á Akranes. Þann tíma sem báturinn lá í Reykjavíkurhöfn, var hann ýmist skráður Eykon RE 19, Adolf RE 182, eða Adolf RE 19, þó alltaf stæði á bátnum sama skráningin Eykon RE 19. Var afskráður sem fiskiskip 24. ágúst 2005.

Nöfn: Seley SU 10,  Jón Þórðarson BA 80, Guðmundur Kristján BA 80, Jón Ágúst GK 60, Jón Ágúst GK 360, Fönix KE 111, Bergvík VE 505, Krossanes SU 5, Stakkur VE 650, Surtsey VE 123, Adolf Sigurjónsson VE 182, Kristjana GK 818, aftur Adolf Sigurjónsson VE 182, Eykon ÍS 177, Eykon RE 19, Adolf RE 182, Adolf RE 19 og núverandi nafn: Arnfríður Sigurðardóttir RE 14.