21.04.2010 20:47
Ægir farinn til Senegal
Varðskipið Ægir lagði úr Reykjavíkurhöfn kl. 22:00 í gærkvöldi áleiðis til Senegal en þar og á vestanverðu Miðjarðarhafi mun varðskipið næstu 6 mánuði sinna landamæraeftirliti fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins.
Skipið siglir til Dakar í Senegal með viðkomu í Las Palmas á Kanaríeyjum þar sem stjórnstöð Frontex er staðsett. Frá 2.-30. maí verður varðskipið við eftirlit undan Senegal og Mauritaníu. Þá verður haldið til Almería á Spáni en þaðan verður skipið gert út við eftirlit í vestanverðu Miðjarðarhafi fram í október. Verkefnið er mikil og góð reynsla fyrir starfsmenn auk sem það skapar Landhelgisgæslunni tækifæri til að ráða fleiri starfsmenn tímabundið til starfa.
Einar H. Valsson skipherra Ægis var í vikunni formlega fastráðinn sem skipherra hjá Landhelgisgæslunni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Einar starfað hjá Landhelgisgæslunni frá árinu 1981 en Einar var fyrst lögskráður á varðskip Landhelgisgæslunnar sem messagutti. Fyrstu ferð sína sem stýrimaður fór Einar þann 17. júlí 1985, daginn eftir að hann fékk stýrimannsskírteinið í hendurnar. Hann lauk svo fjórða stiginu 1988. Einar hefur á starfsferlinum siglt sem afleysingaskipherra allnokkur ár og leyst af á Óðni, Tý og Ægi. Fyrsti túrinn sem afleysingaskipherra var í september 1995 og var það í Smugunni.
Áhöfnin stillir sér upp fyrir brottför
