15.04.2010 19:39

Brynhildur KE 83 / Sæfari SH 339

Hér er á ferðinni plastbátur sem framleiddur var í Noregi 1987 og hefur nú farið aftur heim til föðurhúsanna, og var samferða öðrum sem slíkt var ástand um.




              1815. Brynhildur KE 83, einhvern tímann á árunum frá 1987 til 1998


    1815. Sæfari SH 339 utan á 1900, Ramónu ÍS, en bátarnir voru samferða til Noregs, en þangað höfðu þeir báðir verið seldir og fóru frá Njarðvík að kvöldi 10. júní 2009 © myndir Emil Páll

Framleiddur hjá Viksund Nor A/S, Rödskj. Harstad, Noregi 1987. Lengdur 1995. Seldur til Bergen í Noregi 17. maí 2009.

Báturinn var fluttur til landsins í  ágúst 1987 með flutningaskipi og sjósettur og gefið nafn 28. ágúst 1987. Fór síðan frá Njarðvík ásamt 1900. Ramónu til Bergen í Noregi að kvöldi 10. júní 2009 og voru báðir bátarnir með íslensku nöfnin á leiðinni, en siglt úr af norðmönnum.

Nöfn: Brynhildur KE 83, Sæfari SH 339 og nú óþekkt nafn í Noregi.