22.03.2010 00:00

Boði KE 132 / Boði GK 24 / Eldeyjarboði GK 24 / Sævík GK 257 / Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25

Ég sé að þeir eru furðu seigir sumir af þessum Boizenburg-urum sem ná 45 ára aldri á þessu ári og eru enn í gangi og hér kemur enn einn slíkur.


                              971. Boði KE 132, í Keflavíkurhöfn  © mynd Emil Páll


                 971. Boði KE 132, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll


                  971. Boði GK 24, í Njarðvíkurhöfn © mynd Hafþór Hreiðarsson


                 971. Eldeyjarboði GK 24, í höfn í Njarðvík © mynd Emil Páll


                         971. Sævík GK 257  © mynd Hafþór Hreiðarsson


                          971. Sævík GK 257, á Djúpavogi © mynd Þór Jónsson


  971. Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25 í Reykjavíkurhöfn © mynd Sigurlaugur 2009


    971. Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25 í höfn í Reykjavík © mynd Sigurður Bergþórsson í okt. 2009

Smíðanúmer 407 hjá V.E.B. Elbe-Werdt G.m.b.H, Boizenburg, Þýskalandi 1965, eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar. Yfirbyggður Noregi  1986.

Stakksvík hf., Keflavík var með skipið á leigu frá því að Íslenskir aðalverktakar eignuðust skipið og þar til leigusamningurinn rann út 4. jan. 1995.

Úreldingastyrkur samþ. 12. jan. 1995, en ekki notaður.

Nöfn: Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102, Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 364,  Boði KE 132, Boði GK 24,  Eldeyjar-Boði GK 24, Aðalvík KE 95, Sævík GK 257, Valur ÍS 82 og núverandi nafn: Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25.