24.01.2010 10:56

Síðasti kletturinn

Hér er á ferðinni skip sem kallað var manna á milli Síðasti kletturinn. Ástæðan var sú að skip þetta var það síðasta sem Jón Gíslason í Hafnarfirði gerði út og mörg þeirra báru nafn sem endaði á ....klettur.


                                        977. Búðaklettur GK 251 © teikning Axel E


             977. Venus GK 519, í Leirík 10. des. 1970 © mynd Shetland Museum


                           977. Arnarnes HF 52 © mynd Snorrason


                       977. Jakob Valgeir ÍS 84 © mynd Snorrason



     977. Flosi ÍS 15 (myndin fyrir ofan greinina) © mynd google, ieinarsson


                                     977. Sandrine © mynd Tryggvi Sig.


                             977. Sandrine K 17/15/96 © mynd Tryggvi Sig.

Smíðaður hjá Ankerlokken Verft A/S í Florö í Noregi 1964 og átti þrjú íslensk systurskip. Seldur úr landi til Afríku 15. apríl 1997. Eftir söluna var skipið tekið í gegn í Skipalyftunni í Vestmannaeyjum og skipt um nafn á því áður en það fór til sinna heimkynna í Cameroon í Afríku. Sökkt við bryggju fljótlega eftir að skipið kom til Cameroon. Þar var áhöfnin að verki við að sökkva skipinu vegna launadeildna við útgerðaaðilan. Hvort því var náð aftur upp er ekki vitað.

Þar sem skip þetta var síðasta skip Jóns Gíslasonar í Hafnarfirði, gekk það undir nafninu Síðasti kletturinn.

Búðaklettur var mest gerður út frá Grindavík og Venus frá Keflavík. En flest af skipum Jóns voru gerð út frá Grindavík.

Nöfn: Búðaklettur GK 251, Venus GK 519, Arnarnes HF 52, Arnarnes ÍS 400, Jakob Valgeir ÍS 84, Flosi ÍS 15 og Sandrine K 17/15/96. Ekki er vitað meira um skipið, eftir að því var sökkt.