23.01.2010 17:23

Loftur Baldvinsson EA 124 / Hagbarður KE 116 / Gunnar Bjarnason SH 25

Hér er einn af '63 árgerðinni sem var í gangi í rúm 30 ár og endaði síðan með sölu til Noregs og þaðan fljótlega eftir það í pottinn fræga. Ekki er þó vitað nákvæmlega hvenær hann fór í pottinn, né heldur undir hvaða nafni hann var þá og því síður hver átti hann er það gerðist.


               144. Loftur Baldvinsson EA 124 © mynd Skipamyndir, Hreiðar Olgeirsson


                          144. Hagbarður KE 116  © mynd Emil Páll


                        144. Hagbarður KE 116 © mynd Emil Páll


                144. Gunnar Bjarnason SH 25 © mynd Hafþór Hreiðarsson

Smíðanúmer 3 hjá Hjörungavaag Mek. Verksted A/S, Hjörungavaag, Noregi, en skrokkurinn var smíði nr. 48 hjá Ankelökken Verft A/S í Florö, Noregi 1963, eftir teikningu Sveins Ágústssonar. Kom í fyrsta sinn til Dalvíkur 16. júlí 1963. Yfirbyggður 1985. Seldur úr landi til Noregs 1995 og síðan fór hann í pottinn, en ekki vitað hvert né hvenær.

Nöfn: Loftur Baldvinsson EA 124, Baldur EA 124, Baldur RE 2, Hagbarður KE 116 og Gunnar Bjarnason SH 25. Ekki er vitað um nafn hans í Noregi.