22.01.2010 17:54

Bjarnveig RE 98 / Tjaldanes ÍS 522 / Von SF 101 / Sandvik HM 123

Hér er á ferðinni rúmlega 20 tonna eikarbátur sem var lengi í smíðum á Akureyri og er nú gerður út af íslendingum í Danaveldi.


                        1944. Bjarnveig RE 98 © mynd Snorrason


                           1944. Tjaldanes ÍS 522 © mynd Snorrason


                 1944. Von SF 101 © mynd Snorrason


                              1944. Von SF 101 © mynd af google, ljósm. ókunnur


     Sandvik HM 123 ex 1944 © mynd af google, ljósm.: ókunnur

Smíðanúmer 49 hjá Slippstöðinni hf. Akureyri 1988. Afskráður 27. sept. 2004 og seldur til Danmerkur

Báturinn stóð á stokkunum í þrettán ár í bragga sem var staðsettur ofan Hjalteyrargötu á Akureyri, gengt Slippstöðvarhúsinu norðanverðri. Þaðan var hann dreginn fullbúinn á járnplötu suður fyrir Slippstöðvarhúsið, niður með slippvagninum og inn í vagninn og sjósettur.
Þegar báturinn sigldi frá stöðinni þá var hann háfermdur af krabbagildrum, sem krabbinn átti að synda inn í og þangað kominn þá var útgönguleiðin honum ófær. Þetta er eini báturinn sem ég veit til að hafi verið smíðaður hérlendis til slíkra veiða. Þessi áform gengu ekki upp.

Í árslok 2000 var báturinn tekin á land í Kópbavogshöfn og var þar til í september 2001.

Nöfn: Bjarnveig RE 98, Tjaldanes ÍS 522, Tjaldanes II ÍS 522, Von SF 1, Von SF 101, Afturelding, Aðalvík BA 109 og Sandvík HM 123.